Snákurinn er mjúkur hálskragi sem einfalt er að hringa utan um hálsinn eins og trefli til að ná fram tilætluðum stuðningi við höfuð og háls. Hann er frábær á ferðalagi fyrir þá sem vilja hvílast þegar setið er í flugvél, bíl eða lest. Hann er hannaður af Bjargeyju Ingólfsdóttur iðjuþjálfa og er hluti af vörulínunni BaraHealth.com
Hugarfarið á bak við hönnunina var að skapa heilsuvöru sem vekur jákvæða athygli fyrir notendur og reynist frábær lausn fyrir fólk sem á við krónísk vandamál í hálsi að stríða.
Snákurinn býður líka upp á allskonar möguleika til notkunar sem skart, þá er bara að þora að láta hugmyndaflugið ráða ferðinni.
*Athugið að verðin fyrir BaraHealth vörurnar eru ákveðin af framleiðanda en hægt er að hafa samband við Heimastyrk til að kanna möguleika á að skipta greiðslu í tvennt ef þörf er á. Hægt er að senda fyrirspurn á netfangið heimastyrkur@heimastyrkur.is
top of page
19.000krPrice
bottom of page