Í apríl fékk Guðrún Hallgríms iðjuþjálfi hjá Heimastyrk þann heiður að fjalla um minnisþjálfun og heilaleikfimi fyrir eldri borgara sem sækja fjölbreytt félagsstarf í kirkju á höfuðborgarsvæðinu. Þar kynntist hún fallegum fjórfættum gest sem mætir líka félagsstarfið og elskar að fá ostsneið eins og sést.
Einstaklega skemmtileg samverustund þar sem reyndi á heilasellurnar í orðsins fyllstu merkingu en það dásamlega er að margar hendur (heilar) vinna létt verk. Þau komust því vel gegnum allar þrautirnar og verkefnin með aðstoð hvors annars og alltaf stutt í hláturinn sem minnir á orðatiltækið "Hláturinn lengir lífið"
Ykkar þraut er:
Í hvaða kirkju var Guðrún iðjuþjálfi Heimastyrks með fyrirlesturinn?
#heimastyrkur #iðja #iðjuþjálfun #minni #minnisþjálfun #heili #heilaleikfimi #hlátur #þrautir #æfingar #þjálfun
Comments